Hjálp / Tímaskráningar

Hvaða tímaskráningakerfi hentar mínu fyrirtæki?

CurioTime, InTempus, TimeLog og Tamigo — hvað er ólíkt?

Til baka í hjálp
3 mín lestur

Svar býður upp á fjögur mismunandi tímaskráningakerfi af því að ekkert eitt kerfi hentar öllum. Hér er stutt yfirlit.

CurioTime

Íslenskt snjallsímaforrit með GPS-stimpilklukku. Hentar vel fyrir verktaka, byggingarfyrirtæki og önnur fyrirtæki þar sem starfsfólk er á vettvangi.

InTempus

Verkefnamiðað kerfi þar sem tímar eru skráðir á verk og verkefni. Gefur góða yfirsýn yfir kostnað og tíma á hverju verki.

TimeLog

PSA-kerfi (Professional Services Automation) fyrir ráðgjafarfyrirtæki. Sameinar tímaskráningu, reikningagerð, verkefnastjórnun og rekstrargreiningu.

Tamigo

Workforce management fyrir vaktavinnustaði: sjálfvirkt vaktaskipulag byggt á KPI og vinnutímareglum, tímaskráning í appi og launaútflutningur. Hentar verslun, veitingum og öðrum vaktavinnustöðum.

Ekki viss hvað hentar? Hafðu samband og við ráðleggjum út frá stærð og þörfum þíns fyrirtækis.