Hjálp / Zoho

Hvernig byrja ég með Zoho CRM?

Grunnatriði sem þarf að hugsa um áður en þú innleiðir CRM-kerfi fyrir fyrirtækið.

Til baka í hjálp
5 mín lestur

Zoho CRM er sveigjanlegt kerfi til að halda utan um viðskiptavini, söluferla og samskipti. En eins og öll CRM-kerfi þá er innleiðingin allt sem skiptir máli — ekki hugbúnaðurinn sjálfur.

1. Skilgreindu söluferlið þitt

Áður en þú kveikir á CRM-inu skaltu skrifa niður söluferlið eins og það er í dag. Hvar kvikna tækifæri? Hver tekur þau upp? Hvenær telst sala lokið?

2. Byrjaðu lítið

Ekki reyna að gera allt á einni nóttu. Byrjaðu með grunnmóðul: leads, contacts, accounts og deals. Bættu við fleiri einingum (quotes, projects, support) eftir því sem teymið venst kerfinu.

3. Tengdu tölvupóstinn

Stærsti ávinningurinn af CRM-i er að geta séð allt sem hefur gerst með hverjum viðskiptavini — þar með talda tölvupóstssamskipti. Tengdu Outlook eða Gmail við Zoho CRM til að fá þetta sjálfkrafa.

4. Kenndu fólkinu

Besta CRM-kerfið er það sem er í raun notað. Fjárfestu í þjálfun og gerðu það auðvelt fyrir fólk að nota kerfið daglega.

Svar er Zoho Partner á Íslandi og hjálpar fyrirtækjum í öllu ferlinu — frá hönnun til þjálfunar. Hafðu samband ef þú vilt fá ráðgjöf.